Um okkur

Kruðerí og kjánabangsar er matarblogg Heiðu og Sigurbjargar. Við erum miklir sælkerar og matgæðingar. Við tölum um mat við alla allan daginn alla daga. Það hvarflaði að okkur að hugsanlega væri skemmtilegra fyrir fólkið okkar, vini, ættingja og vinnufélaga að þurfa ekki að hlusta á okkur blaðra um uppskriftir út í eitt og þau gætu í staðinn lesið rausið í okkur ef áhugi væri fyrir hendi. Þess vegna ákváðum við að opna matarblogg (hugsanlega hefur einhver matarathyglissýki eitthvað með þetta að gera líka). Hér ætlum við að fá útrás fyrir mataráhugan og deila ást okkar á mat með ykkur öllum.

Við elskum allan mat og því verður ekki áhersla á eitt frekar en annað. Við ætlum bara að segja ykkur hvað okkur finnst gott að borða!