Eplasmjör

Ég kynntist eplasmjöri, eða apple butter, í fyrsta skipti þegar ég bjó í Georgíu í Suðurríkjunum. Það var skemmtilega öðruvísi en aðrar sultur sem ég hef kynnst, kryddað og gott. Á meðan mér fannst það ágætt þá tók fjölskyldan mín alvarlegu ástfóstri við það svo ég hef verið að gera eplasmjör í nokkur ár og deila út á meðal fjölskyldumeðlima þegar farið er að ganga á birgðirnar hjá þeim. Ég vona að þið njótið þessarar uppskriftar jafn mikið og við höfum gert!

Ég er að birta þessa uppskrift núna í október 2020 því að hún Sigurbjörg var að biðja mig um hana. Ég byrjaði að skrifa hana niður í maí 2015 en setti aldrei inn myndir af einhverri ástæðu og uppskriftin beið bara eftir að ég mundi klára hana. Þetta er æðisleg uppskrift, ég skil ekkert í mér að hafa ekki birt hana strax. Ég bjó hana upprunalega til sem samsuðu úr mörgum uppskriftum og aðlagaði hana að því að vera gerð á hellu en í Suðurríkjunum voru flestar uppskriftirnar fyrir slow cooker. Ég átti ekki slíkan og á enn ekki svo að ég geri mitt eplasmjör alltaf á hellu. Að auki vil ég taka fram að ég veit myndirnar eru ekki þær allra bestu, ég biðst forláts.

Eplasmjör

~2 kg Jónagold epli
6 dl vatn
1 1/4 dl edik

Skerðu eplin í grófa bita með hýði og fræjum og settu í pott með vökvunum. Eplin skaltu sjóða þangað til þau maukast auðveldlega, ég sauð þau í uþb. klukkutíma. Næst þarftu að kremja þau í gegnum sigti til að þú endir uppi með eplamauk. Þetta er frekar tímafrekt og þreytandi, taktu þér bara pásur eða fáðu einhvern með þér í þetta. Ég fékk hjálparkokk til að hjálpa mér síðustu mínúturnar. Þær eru erfiðastar því þú vilt nefnilega fá því sem næst allt eplakjötið, svo að maukið verði ekki bara lapþunnt eins og í byrjun.
Á móti hverjum 2 hlutum af eplamauki fer 1 hlutur af sykri. Uppskriftin er miðuð út frá því að þú sitjir uppi með uþb. 2 lítra af eplamauki. Ég mundi ekki setja mikið meira af eplamaukinu en það án þess að auka aðeins við kryddin í leiðinni.

~2 l eplamauk
~1 l sykur
2 teskeiðar kanill
1/2 teskeið negull
smá múskat
smá salt
börkur og safi úr hálfri sítrónu

Hræra öllu saman í góðum potti og láta suðuna koma upp. Hrærðu reglulega og leyfðu eplasmjörinu að sjóða í uþb. 2 tíma. Prófaðu þykktina með því að setja örlítið af eplasmjöri í botninn á lítilli skál og inn í ísskáp í smá stund. Þegar þér líkar þykktin þá seturu smjörið í krukkur. Ég er svo hégómafull með sulturnar mínar að ég setti smá rauðan matarlit út í hana undir lokin, eins og amma mín gerði alltaf með rabbabarasultuna sína. Ég fékk síðast 6 krukkur af eplasmjöri út úr þessu. Smjörið er gott á allt sem sultur eru góðar á, vöfflur, pönnukökur, hjónabandsælur, í mútur, með ostum, á ristað brauð osfrv. osfrv. Njótið í tíma og ótíma!

Krækiberja- og rabbabarasulta með vanillu

P1110980Þetta verður síðasta berjauppskriftin í bili. Segi ég núna a.m.k. Margt af því sem ég er búin að vera að gera við berin er bara of gott til að geyma uppskriftina þangað til á næsta ár! Það munu því örugglega læðast einhverjar uppskriftir með berjum hér inn svona endrum og eins en þeir sem eru ekki ofur berjaaðdáendur eins og ég verða nú líka að fá eitthvað fyrir sinn snúð.

En mér finnst líka nauðsynlegt að fyrst ég er að dæla út berja uppskriftum að það sé alla vega ein sultuuppskrift.

Krækiberja- og rabbabarasulta með vanillu

350 g rabbabari
350 g krækiber
500 g sykur
1 vanillustöng
1 tsk vanilludropar, því mér fannst ekki nóg vanillubragð, mætti jafnvel vera meira eða setja smá vanillusykur móti sykrinum.

P1110977

Brytjið rabbabaran og setjið í pott ásamt krækiberjum, sykri og vanilludropum. Skafið fræin úr vanilluströnginni að mestu og látið stöngina sjóða með. Hitið að suðu og látið malla þar til berin eru sprungin og rabbabarinn farinn að maukast. Maukið aðeins með töfrasprota eða í matvinnsluvél.

P1110984